Leikhópurinn Svavar
Leikhópurinn Svavar var óformlega stofnaður þann 9. júlí 2011 en lá í til þess gerðum dvala fram að lokum ágústmánaðar sama ár. Þá var hann formlega stofnaður þann 27. ágúst.
Leikhópurinn vinnur og flytur frumsamið efni.

Stefán Vigfússon- Framkvæmdastjóri/Rithöfundur/Leikstjóri/
Leikari
Hávarr Hermóðsson - Framkvæmdastjóri/Rithöfundur/Leikari
Vilhelm Þór Neto- Leikari/Leikstjóri
Berta Andrea Snædal - Leikkona

Hægt er að hafa samband við okkur í gegnum netfangið okkar, leikhopurinnsvavar@gmail.com
Nýjasta af okkur.

Hæhæ!
Núna höfum við verið ansi dugleg við að vanrækja þessa ágætu síðu okkar, en það er margt að frétta af okkur og hér er það!
Fyrri hluta desember mánaðar kláruðum við fyrstu stuttmyndina okkar, Svavar, Vilhelm sá um leikstjórn, tökustjórn, klippingar og upptöku (og lifði það af.) Stefán skrifaði handritið og Hávarr og Berta léku aðalhlutverkin. Auk þeirra fengum við frábært leiklið, þau Heiðdísi Chadwick Hlynsdóttur, Ólaf Þórðarson, Önnu Karen Kolbeins og Val Frey Einarsson. Einnig fengum við ómetanlega aðstoð góðra vina, Dag Gonzales, Sölmund Ísak, Hönnu Alexöndru, Einar Karl Gunnarsson og hinn dýrmæta og frábæra Ara Þór Gunnarsson! Takk fyrir okkur! Um þessar mundir erum að fara með myndina út um allt og hefur hún strax hlotið hálfgert lof, eins og farið verður út í aðeins seinna.

Í seinni hluta desember mánaðar settum við upp fyrsta leiksýninguna okkar í Norðurpólnum, leikhúsi, við sýndum fyrir nánast fullu húsi þessi þrjú kvöld og voru viðtökunar langt umfram það sem við höfðum leyft okkur að vona! Við fórum með frumsamið efni, en við frumsýndum Svavar þar, auk þriggja einleika sem Hávarr, Berta og Vilhelm fóru með, en Stefán skrifaði. Síðan að sjálfsögðu Vín, sem Hávarr og Stefán skrifuðu. Í því fengum við hana Ingibjörgu Silvu Þórðardóttur með okkur.
Vinkonur okkar Berglind Hreiðarsdóttir og Hjördís Gréta Guðmundsdóttir komu, sáu og skrifuðu þessa skemmtilegu grein um okkur: http://farbelecafe.tumblr.com/page/3#15948244010

Í fyrradag, laugardaginn 28. janúar, sýndum við Svavar á Ljósvakaljóð í Bíó Paradís, hún hlaut lof og tökum við áhorfandaverðlaunin fyrir.

Síðustu mánuðir eru búnir vera erfiðir, skemmtilegir, stressandi og spennandi allt í senn.
Fylgist með okkur næstu daga, vikur og mánuði, það er margt í vændum. (Styttist í næstu tækjaleigu!)

Kveðja, Leikhópurinn Svavar! 

Jan 30th (8:37am)
1 note

  1. svavar posted this